15 Janúar 2008 12:00

Fimm karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. janúar en þeir réðust að lögreglumönnum við skyldustörf á Laugavegi aðfaranótt föstudags. Þrír þeirra voru handteknir á vettvangi en tveir á heimili sínu í Reykjavík. Fimmmenningarnir, sem eru á aldrinum 19-25 ára, eru allir af erlendu bergi brotnir.