24 September 2019 15:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við aðstoðarbeiðni rétt fyrir hádegi en Lögreglan á Vesturlandi hafði veitt bifreið athygli sem var ekið á miklum hraða við Hvalfjarðargöng í átt að borginni. Ökumaður virti ekki ítrekuð stöðvunarmerki lögreglu og var talinn valda mikilli hættu, enda var bifreiðin mæld á rúmlega 200 km/klst hraða þegar mest var. Lögð var naglamotta í veg fyrir bifreiðina og var hún loks stöðvuð í Mosfellsbæ. Þar veittist ökumaðurinn að lögreglumönnum og var handtekinn. Málið er í rannsókn og ekki hægt að veita frekari upplýsingar  að svo stöddu.