17 Júní 2012 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, við athafnasvæði Vegagerðarinnar sunnan Hvalfjarðargangna. Á rúmlega einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 492 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða um 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 124 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Þess ber þó að geta að tveir þeirra voru ökumenn bifhjóla en annar þeirra mældist á 145 km hraða og hinn á 164. 

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. 

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.