28 Júlí 2006 12:00

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík á síðasta sólarhring. Í þeim hópi voru tveir bifhjólamenn sem óku á yfir 140 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Ekki þarf að hafa mörg orð um svona akstursmáta sem er stórhættulegur.

Þess má geta að bifhjólamenn héldu baráttufund í gærkvöldi en þrír úr þeirra röðum hafa dáið í umferðarslysum á árinu. Því er það kaldhæðni örlaganna að lögreglan skuli stöðva för tveggja bifhjólamanna fyrir ofsaakstur, nokkru eftir að fyrrnefndum fundi lauk.

Lögreglan vill samt taka fram að meginþorri bifhjólamanna er til fyrirmyndar og virðir umferðarlög. En eins og oft vill verða eru alltaf til svartir sauðir og þeir setja blett á hina.