8 Nóvember 2006 12:00

Um síðustu helgi voru mynduð brot 158 ökumanna sem óku yfir leyfilegum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngunum. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 km/klst. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða en viðurlög fyrir slíkan ofsaakstur eru 70 þúsund króna sekt og ökuleyfissvipting til þriggja mánaða. Öllum má ljóst vera að slíkt aksturslag setur aðra vegfarendur í mjög mikla hættu og því fordæmir lögreglan þetta framferði ökumannsins.

Á annan tug ökumanna voru síðan stöðvaðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík í gær. Sá sem hraðast ók mældist á 129 km hraða í Ártúnsbrekkunni. Viðkomandi ökumaður er 17 ára piltur sem hefur einu sinni áður verið stöðvaður fyrir hraðakstur. Þá var hann tekinn á 112 km hraða á svipuðum slóðum. Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir hraðakstur í íbúðargötum í gær en báðir óku á tæplega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða.

Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur í austurbænum í gærmorgun. Sá er áttræður karlmaður en hann hefur lítið sem ekkert komið við sögu hjá lögreglunni áður. Þá var karlmaður á fimmtugsaldri stöðvaður fyrir aka undir áhrifum lyfja. Sextán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar. Í þriðjungi þeirra varð slys á fólki, flestöll þó minniháttar. Skrásetningarnúmer voru klippt af sjö ökutækjum í gær. Sex reyndust ótryggð en eitt hafði ekki fengið lögboðna skoðun.