28 September 2011 12:00

Kona á fertugsaldri var stöðvuð við akstur í Reykjavík í gærmorgun. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin, sem hafði þegar verið svipt ökuleyfi, var handtekin og flutt á lögreglustöð. Þess má jafnframt geta að barnið var ekki með viðeigandi öryggisbúnað í bílnum.