23 Desember 2011 12:00

Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hann var undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barnið hans en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Faðirinn, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, var handtekinn og fluttur á lögreglustöð.