9 Ágúst 2013 12:00

Kona á þrítugsaldri var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Þess má geta að konan hafði þegar verið svipt ökuleyfi.