30 Ágúst 2011 12:00

Kona á þrítugsaldri var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Hún var í annarlegu ástandi en í fórum hennar fundust fíkniefni. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð en hún hafði þegar verið svipt ökuleyfi.