8 Janúar 2013 12:00

Kona var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för voru börnin hennar, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þeirra þágu og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Mamman var hins vegar handtekin og flutt á lögreglustöð. Því miður er mál sem þetta ekki einsdæmi.