13 Október 2011 12:00

Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í gær en í einu þeirra var ekið á ljósastaur í Grafarvogi. Ökumaðurinn, piltur um tvítugt, var fluttur á slysadeild en óhappið er rakið til þess að hann var að leita að símanum sínum og missti þá stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn er talsvert skemmdur og var fjarlægður af vettvangi með dráttarbíl.