6 September 2019 18:49

Allnokkir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Suðurlandsvegi, við Sandskeið, þegar lögreglan var þar við hraðamælingar í dag. Sá sem hraðast ók mældist á 151 km hraða, en þar var um að ræða erlendan karlmann um fimmtugt, sem var á ferðalagi með börnum sínum. Maðurinn borgaði sektina, kr. 157.500, möglunarlaust og bar því við, spurður um þennan glórulausa ökuhraða, að hann taldi sig vera að aka á hraðbraut! Flestir hinna, sem lögreglan stöðvaði, óku þarna á 120-130 km hraða og var um helmingur þeirra erlendir ferðamenn, en hinir íslenskir ökumenn, sem voru líka að flýta þér þessi lifandis ósköp.