21 Júlí 2009 12:00

Þótt ótrúlegt megi virðast er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu enn að stöðva bíla sem eru búnir nagladekkjum. Trassaskapur sumra ökumanna er með eindæmum en í þeim hópi er kona á þrítugsaldri sem lætur sér ekki segjast. Lögreglan hefur stöðvað hana fjórum sinnum undanfarnar vikur og gert athugasemdir við hjólbarðana en bíll konunnar er ennþá á nagladekkjum. Ekki er þó öll sagan sögð því tvisvar á sama tímabili hefur konan jafnframt verið staðin að hraðakstri. Í seinna skiptið var hún tekin í Ártúnsbrekkunni en þá mældist bíll hennar á tæplega 140 km hraða. Konan á yfir höfði sér ökuleyfissviptingu og verulegar fjársektir.