22 Júní 2009 12:00

Gerð verður krafa um gæsluvarðhald yfir ökumanni jeppabifreiðar er handtekinn var í gær vegna ofsaaksturs meðal annars. Hann er m.a. grunaður um brot er varða við almannahættu samkvæmt 18. kafla almennra hegningarlaga og 23. kafla sömu laga er varða manndráp og líkamsmeiðingar. Þá er hann og grunaður um brot gegn 12. kafla almennra hegningarlaga er fjallar um brot gegn valdstjórninni.