13 Júlí 2007 12:00

Flestir ökumenn bregðast vel við afskiptum lögreglu en þó eru á því undantekningar eins og gengur. Eitthvað var hann illa fyrir kallaður tvítugi pilturinn sem var stöðvaður á Hafnarfjarðarvegi í gær. Á bíl hans vantaði skráningarnúmer að framan og svo hafði hann trassað að færa ökutækið til skoðunar. Piltinum var bent á að koma þessum hlutum í lag og gefinn ákveðinn frestur til að gera bragarbót. Tilmæli lögreglu fengu ekki ýkja góðan hljómgrunn því pilturinn barði ákaft í mælaborðið á meðan þessu stóð. Hann greip síðan um höfuð sér og fór út úr bílnum og öskraði út í loftið. Þegar lögreglumaður á vettvangi taldi að pilturinn hefði meðtekið skilaboðin var honum leyft að halda för sinni áfram. Þá steig hann hressilega á bensíngjöfina og spólaði af stað svo smásteinar og drulla skutust undan bílnum og á bifhjól lögreglumanns. Pilturinn komst hins vegar ekki mjög langt því það drapst á bílnum og trúlega hefur það ekki bætt skapið.

Vonandi verður hann þó orðinn rólegri þegar greiðsluseðillinn berst honum en pilturinn á samtals 15 þúsund króna sekt yfir höfði sér. Þ.e. fyrir að aka bíl án skráningarnúmers að framan og fyrir að sýna þeim sem staddir eru við veg ekki nægilega tillitssemi.