13 Júlí 2023 17:20

Ökumaðurinn sem lenti í umferðarslysi á Þrenglsavegi í morgun er bifreið hans fór út af veginum og valt þar nokkrar veltur, var úrskurðaður látinn við komu á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi.

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um umferðarslysið kl. 08:38 og var Þrengslavegi lokað um stund á meðan vinna á vettvangi stóð yfir. Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.

Ökumaður var  á 19. aldursári. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.