10 Apríl 2008 12:00

Brot aðeins eins ökumanns var myndað á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, nærri Skólagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 89 ökutæki þessa akstursleið og því voru nánast allir ökumenn til fyrirmyndar. Bíll þess eina sem ók of hratt eða yfir afskiptahraða mældist á 59 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar á Borgarholtsbraut er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Borgarholtsbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.