27 Ágúst 2010 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Fornhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fornhaga í suðurátt, við Hagaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Fornhaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.