28 Apríl 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hlíðardalsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðardalsveg í norðurátt, að Jöklalind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 17 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem ók of hratt mældist á 61.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hlíðardalsvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.