15 Apríl 2008 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit á Hlíðardalsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðardalsveg í norðurátt, að Jöklalind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 9 ökutæki þessa akstursleið en engu þeirra var ekið of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar á Hlíðardalsvegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Hlíðardalsvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.