19 Maí 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hofsvallagötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hofsvallagötu í suðurátt, að Einimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en sá sem hraðast ók mældist á 68. 

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hofsvallagötu var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.