15 Apríl 2008 12:00

Brot tveggja ökumanna voru mynduð á Hvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvammsveg í vesturátt, að Hljóðalind. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því voru nær allir ökumenn til fyrirmyndar. Bílar þessara tveggja sem óku of hratt eða yfir afskiptahraða mældust á 59 og 60  km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar á Hvammsvegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Hvammsvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.