27 Mars 2009 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit á Kópavogsbraut í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð á Kópavogsbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, milli Suðurvarar og Kópavarar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 50 km hámarkshraði.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Kópavogsbraut. Útkoman þá var sömuleiðis góð en tveir óku of hratt eða yfir afskiptahraða. Líkt og nú stóð vöktunin 2008 yfir í klukkutíma en í fyrra fór 31 ökutæki þessa áðurnefndu akstursleið og því var brotahlutfallið lágt.