30 Ágúst 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Langholtsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, frá Holtavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 257 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 60 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi, en í nágrenninu er Langholtsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.