19 Maí 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á milli Drekavogs og Skeiðarvogs. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 204 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. Þeir sem óku of hratt mældust báðir á 59. 

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Langholtsvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.