4 Maí 2010 12:00

Ökumenn voru almennt til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, við Vallengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 130 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fjórum, eða 3%, ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en sá sem hraðast ók mældist á 75.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Mosavegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.