21 Júní 2010 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Skólabraut í Mosfellsbæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skólabraut í austurátt, gegnt Varmárskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Mælingarnar á miðvikudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Skólabraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.