21 Apríl 2008 12:00

Brot aðeins eins ökumanns var myndað í Arnarsmára í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarsmára í vesturátt, að Bollasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 10 ökutæki þessa akstursleið og því voru nær allir ökumenn til fyrirmyndar. Bíll þess eina sem ók of hratt eða yfir afskiptahraða mældist á 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar í Arnarsmára er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Arnarsmára var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.