16 Apríl 2009 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit í Baugakór í Kópavogi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð í Baugakór en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 10 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Baugakór. Útkoman þá var sömuleiðis góð en enginn ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Þá fóru 11