27 Apríl 2009 12:00

Einn var staðinn að hraðakstri í Hlíðarhjalla í Kópavogi á föstudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot aðeins 1 ökumanns myndað í Hlíðarhjalla en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Skálaheiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því voru nánast allir ökumenn til fyrirmyndar. Bíll þess eina sem ók of hratt eða yfir afskiptahraða mældist á 60 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.