15 September 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Jaðarseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jaðarsel í norðurátt, við Kleifarsel. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Jaðarseli, en í nágrenninu er Seljaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.