21 Júní 2010 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Langatanga í Mosfellsbæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langatanga í norðurátt, við Baugatanga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 21 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Langatanga var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.