13 Febrúar 2019 15:22

Þegar ökutæki eru skilin eftir í vegkanti vegna ófyrirsjáanlegra atvika svo sem vegna bilunar eða tjóns þá skiptir það máli að það sé gert rétt – að viðvörunarþríhyrningur sé settur upp, viðvörunarljós bifreiðar (hættuljós) ræst og bíllinn fjarlægður eins fljótt og auðið er. Ef staðsetning er mjög hættuleg er nauðsynlegt að tilkynna lögreglu um atvikið, staðsetningu með upplýsingum um að ökutækið verði tafarlaust brotflutt eða eftir atvikum óska eftir aðstoð lögreglu gegnum 112. Mörg slys hafa átt sér stað þar sem ekið var á yfirgefna bíla á stofnbrautum.

Því miður þurfti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að láta fjarlægja hátt í 200 ökutæki með dráttarbifreið á síðasta ári, en öll áttu þau það sameinginlegt að vera skilin eftir og sköpuðu með því hættu og óþægindi fyrir umferð.

Bíllinn á myndinni hér að neðan var dreginn í burtu fyrir skemmstu – engin viðvörunarþríhyrningur, engin viðvörunarljós og ekki náðist í eiganda og var bíllinn því dreginn burt með dráttarbifreið með þeim kostnaði og óþægindum sem því fylgir.