18 Apríl 2012 12:00

Lögreglan hafði afskipti af ökumanni á Fiskislóð í gærmorgun eftir að tilkynning barst um háskalegt aksturslag hans en maðurinn var sagður vera að „spóla” þarna með tilheyrandi hávaða og látum. Allt reyndist þetta vera satt og rétt en ökumaðurinn viðurkenndi sök eftir að hafa í fyrstu reynt að malda í móinn. Þetta reyndist vera góðkunningi lögreglunnar, karl á þrítugsaldri sem hefur ítrekað gerst sekur um umferðarlagabrot. Það kom því heldur ekki óvart að maðurinn gat ekki framvísað ökuskírteini enda þegar búið að svipta hann ökuleyfi.