31 Janúar 2011 12:00

Karl á miðjum aldri var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sá var ekki einn á ferð því með í för var ungt barn ökumannsins og sat það í framsæti bílsins. Þess má geta að ökumaðurinn hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.