2 Júní 2020 16:03

Þrjátíu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um hvítasunnuhelgina. Tuttugu og fimm voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi, Mosfellsbæ og Kjósarhreppi. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, tíu á laugardag, ellefu á sunnudag og tíu á mánudag. Þetta voru tuttugu og átta karlar á aldrinum 17-66 ára og fimm konur, 20-58 ára. Tíu þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.