16 Nóvember 2020 13:00

Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði og þrír í Garðabæ. Fimm voru teknir á föstudagskvöld, átta á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sextán karlar á aldrinum 18-52 ára og þrjár konur, 23-28 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.