21 Desember 2020 12:20

Tuttugu og sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu og einn þeirra var stöðvaður í Reykjavík, fimm í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, tólf á laugardag, átta á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og fjórir karlar á aldrinum 17-64 ára og þrjár konur, 24-43 ára. Átta þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.