28 Febrúar 2022 13:28

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi, tveir í Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, fimm á laugardag, fjórir á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru ellefu karlar á aldrinum 21-51 árs og fimm konur, 30-44 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.