7 Mars 2022 11:05

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, sex á laugardag, níu á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu karlar á aldrinum 18-51 árs og tvær konur, 28 og 55 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.