25 Apríl 2022 11:41

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimmtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi og einn í Garðabæ, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, ellefu á laugardag, fimm á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu karlar á aldrinum 17-44 ára og tvær konur, 33 og 60 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sex hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Af öðrum verkefnum helgarvaktarinnar má nefna að tólf líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu, þar af þrjár alvarlegar. Þá var farið í fjögur útköll vegna heimilisofbeldis.