2 Maí 2022 12:04

Tuttugu voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Nítján þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, sex á laugardag, sex á sunnudag og fimm aðfaranótt mánudags. Þetta voru sautján karlar á aldrinum 21-64 ára og þrjár konur, 43-58 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi. Til viðbótar stöðvaði lögreglan för sex réttindalausra ökumanna og var þeim öllum gert að hætta akstri.

Af öðrum verkefnum helgarvaktarinnar má nefna að sextán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu, þar af ein alvarleg. Þá var farið í sjö útköll vegna heimilisofbeldis.