24 Október 2022 17:08

Tuttugu og sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu og tveir voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi og Garðabæ. Fimm voru teknir á föstudagskvöld, tólf á laugardag, níu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta var tuttugu og einn karl á aldrinum 21-70 ára og sex konur, 20-39 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og fjórir hafa aldrei öðlast ökuréttindi. Einn ökumannanna var á stolnum bíl og annar með barn í bílnum.

Lögreglan var mjög víða við eftirlit í umdæminu með ölvunar-, fíkniefna- og lyfjaakstri og svo verður vitaskuld áfram enda full ástæða til.