27 Janúar 2010 12:00

Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Um var að ræða karl á fimmtugsaldri en sá var stöðvaður á Suðurlandsbraut. Í gær og nótt voru jafnframt þrír ökumenn teknir fyrir að aka undir áhrifum fíknefna. Þeir voru stöðvaðir í Kópavogi, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Um var að ræða tvo karla á þrítugsaldri og konu á fertugsaldri. Þess má geta að konan hafði þegar verið svipt ökuleyfi.