4 Nóvember 2011 12:00

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gærkvöld og nótt. Þetta voru kona á þrítugsaldri og karl á fertugsaldri, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Annar karl, sömuleiðis á fertugsaldri, var stöðvaður við akstur í Garðabæ en sá hafði líka þegar verið sviptur ökuleyfi. Viðkomandi reyndi að ljúga til nafns en maðurinn hefur áður verið tekinn fyrir að aka sviptur.