23 Desember 2011 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Þetta voru sex karlar á aldrinum 17-31 árs og tvær konur, 23 og 53 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.