15 Desember 2011 12:00

Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 25-40 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en sá þriðji var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða, eftir á lögreglustöðina var komið.