27 Janúar 2012 12:00

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en þeir voru stöðvaðir í Reykjavík og Kópavogi. Þetta voru tveir karlar, annar rúmlega tvítugur en hinn sjötugur. Til viðbótar var karli á þrítugsaldri gert að hætta akstri í Reykjavík í nótt en viðkomandi hafði neytt áfengis en var þó undir leyfilegum mörkum.