17 Janúar 2012 12:00

Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt en þeir voru stöðvaðir í Kópavogi, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Þetta voru tveir karlar, 27 og 50 ára, og ein kona, 18 ára.