13 Janúar 2012 12:00

Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. Þetta voru tveir karlar, 24 og 28 ára, og tvær konur, 42 og 45 ára. Einn þessara ökumanna hefur aldrei öðlast ökuréttindi.